Frídagur í dag - stúktúr á morgun
08. maí 2010 klukkan 20:03
I dag var frídagur í öllum skilningi. Ég fór í bæinn í morgun með manninum mínum og stelpuskottinu og þar gengum við um í 2 og hálfan tíma. Þar fórum við svo á kaffihús í hadeginu og ég fékk mér brauð með hummus og grænmeti. Morgunmaturinn var egg og beikon (í hófi) og ein ristuð brauðsneið. Eftir hádegið og í kvöld hef ég aftur á móti borðað dálítið af óhollustu en það var meðvituð ákvörðun og ég hlakka bara til að halda áfram á morgun með eingöngu hollustu á matseðlinum.
Ég dett oft í þann pitt að fókusera á það sem ekki er í lagi hjá mér í lífinu, í stað þess að fókusera á það sem er í lagi. Nú ætla ég að skrifa niður 10 atriði sem eru jákvæð í lífi mínu, svona til að minna mig á það hvað ég er í raun heilbrigð og heppin
Úff, þetta var pínu erfitt - en svei mér þá ef þetta er ekki bara allt satt! Mæli með´essu
Morgundagurinn:
Morgunn: Ab-mjólk með 1/2 epli og 1/2 peru. Ein ristuð brauðsneið með smjöri, osti og gúrku. Koffeinlaust kaffi/te
Mið-morgunn: Ávöxur
Hádegi: Salat úr salatblöðum, gúrku, tómötum og gulrótum. Mozzarellakúla, skinka og ristuð brauðsneið m. smjöri
Eftir hádegi: Miðlungsstór skál m jarðaberjum og 1/2 peru
Kvöld: Steiktur fiskur, soðnar kartöflur (2 meðalstórar) og gulrætur. Ferskt salat.
Kvöldsnakk: Ávöxtur

- Ég á góðan mann, góða dóttur, annað barn í maga og tvær kisulórur - og yfirleitt ríkir ástúð á heimlinu
- Mér voru gefnir hæfileikar í vöggugjöf sem ég hef fengið tækifæri til að nýta með löngu námi og svo farsælum starfsferli
- Ég á margar og góðar vinkonur (og nokkra vini:)
- Ég hef átt það til að fara í þunglyndi en smám saman lært á sjalfa mig og þakka fyrir að hafa verið opin fyrir því í seinni tíð að leita mér hjálpar. Smám saman hef ég lært að bregðast fyrr við þegar ég fæ einkennin og forðast aðstæður og álag sem leiða til þunglyndis.
- Ég hafði tækifæri til að taka langt fæðingarorlof þar sem ég fékk mikinn tíma með dóttur minni og ráð til að hugsa hvert ég vildi stefna í sambandi við vinnu
- Mér hefur alltaf þótt gaman að hreyfa mig en þegar ég var í fráhaldi datt hreyfing niður hjá mér. Núna hlakka ég til að halda áfram að hreyfa mig og styrkja og er búin að skora á systur mína og mágkonu að ganga Laugaveginn með mér sumarið 2012 - eitthvað sem mig hefur alltaf dreymt um að gera.
- Dampurinn hefur oft dottið niður hjá mér þegar kemur að sjálfsrækt á líkama og sál en alltaf finn ég viljann og kraftinn smám saman til að halda áfram
- Ég get verið sæt þó ég sæ ekki í kjörþyngd

- Ég er frábær kokkur
- Ég er dugleg
Úff, þetta var pínu erfitt - en svei mér þá ef þetta er ekki bara allt satt! Mæli með´essu

Morgundagurinn:
Morgunn: Ab-mjólk með 1/2 epli og 1/2 peru. Ein ristuð brauðsneið með smjöri, osti og gúrku. Koffeinlaust kaffi/te
Mið-morgunn: Ávöxur
Hádegi: Salat úr salatblöðum, gúrku, tómötum og gulrótum. Mozzarellakúla, skinka og ristuð brauðsneið m. smjöri
Eftir hádegi: Miðlungsstór skál m jarðaberjum og 1/2 peru
Kvöld: Steiktur fiskur, soðnar kartöflur (2 meðalstórar) og gulrætur. Ferskt salat.
Kvöldsnakk: Ávöxtur
En já.. líta yfir daginn og bara muna eftir því jákvæða og hvað maður var duglegur.. hitt er bara leiðinlegt :)