Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

Dagur 4

20. maí 2010 klukkan 06:21
Jæja, þá er dagur 4 runninn upp og ég var að sporðrenna morgunpönnukökunni minni sem bragðast lystavel!  Í gær var smá áskorun þar sem ég þurfti að fara i sykurþolspróf út af óléttunni, en í landinu þar sem ég bý núna fara allar konur með BMI gildi yfir 30 í sykurþolspróf.  Blóðþrýstingurinn, súrefnismettun og hjartsláttur var líka skoðaður  - Og viti menn, allt kom vel útSmile

Tvær fráhalds-áskoranir þurfti ég aftur á móti að yfirstíga í gær - Sú fyrri var sú að ég var fastandi og borðaði ekki morgunmat fyrr en eftir prófið eða kl.12.30.  Ég var auðvitað orðin ansi svöng, hafði ekki borðað síðan 19.30 kvöldið áður og langaði mikið í brauðið sem mér var boðið í lok rannsóknarinnar.  En ég borðaði bara nestið mitt á heimleiðinni og þar með hvarf brauðlöngunin - Sigur 1.

Hin áskorunin var svo sú að á vigtinni á spítalanum vigtaðist ég 4.5 kg léttari í fötum, heldur en ég hafði vigtað mig án fata á minni vigt hérna heima þremur dögum áður.  Og þá fór nú aldeilis hausinn af stað........Ég ákvað svo aftur á móti með stuðningsaðilanum mínum að vigta mig aftur á vigtinni hérna heima í morgun og þar var ég 1 kg léttari en fyrir þremur dögum, sem ég held að sé raunhæft.  Það er aftur á móti spurning hvort ég verði ekki að fara að fjárfesta í nýrri vigt ef hún sýnir nokkrum kílóum meira en stóra vigtin á sjúkrahúsinu.....En ég hélt áfram í fráhaldi og lét þetta vigtarrugl ekki segja mér að ég þyrfti þess ekki - Sigur 2.

Ég ætla að halda áfram að njóta fráhaldsins og vera þakklát fyrir að rannsóknin í gær kom svona vel út.

Eigið frábæran dag!! 
Glæsilegt! Til hamingju með sigrana 3 :)
#1
20. maí 2010 klukkan 09:46
 
minnkandi
Takk :)
#2
20. maí 2010 klukkan 11:55
 
Lilja Guđrún
Æðislegt að allt gekk vel.
Eigðu yndislegan dag í fráhaldi og gangi þér vel

:-)
#3
20. maí 2010 klukkan 14:26
 
minnkandi
Takk og sömuleiðis Lilja Guðrún :)
#4
21. maí 2010 klukkan 10:14

Skrifa athugasemd