Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

Gott grćnmeti í gćrkvöldi

21. maí 2010 klukkan 06:52

Ég átti soðið blómkál, steinseljurót og gulrætur í ísskápnum í gær og ákvað að gera eitthvað skemmtilegt við það með kjúllanum sem ég var með í kvöldmat.  Útkoman kom skemmtilega á óvart! 

Ég skellti soðna grænmetinu öllu á wok-pönnu, steikti upp úr ólífuolíu, sjávarsalti og slatta af TIMIAN.  Þetta varð svona pínu "krispí" og alveg ferlega gott!  Ég hafði svo steikt kjúklinginn upp úr engifer- og karrýdufti og svo var ferskt salat með úr salatblöðum, tómötum, gúrku, gulrótum og papriku.  Fitan var í formi 30g mayones með sítrónubragði.  Restin af familíunni fékk svo hrísgrjón með (sem ég sleppi) og svo borðuðum við fersk bláber og jarðaber í eftirmat ýmist með ab-mjólk eða grískri jógúrt yfir.  Lúxus! Smile

Hey hey
Langaði bara að láta þig vita að ég var að rekast á þig hér á blogginu & ætla að fylgjast með þér!! Gangi þér ótrúlega vel! :)

Má ég linka á þig á síðunni minni?
#1
23. maí 2010 klukkan 16:17

Skrifa athugasemd