Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

Dagur 10

26. maí 2010 klukkan 07:33

Jæja, tíminn líður hratt og mér líður vel í fráhaldinu mínu og óléttan gengur vel, bráðum komnar 22 vikur!  Er búin að finna fyrir hreyfingum í þónokkurn tíma en í fyrsta skipti í gær gat ég fundið fyrir spörkum utan frá - það verður æ raunverulegra að eftir smá tíma mun spretta barn út úr kúlunni :-)

Framan af degi finnst mér yfirleitt mjög auðvelt og gott að vera í fráhaldi og ekki mikið mál að undirbúa matinn minn. Stundum upplifi ég aftur á móti mikla gremju þegar ég er að elda kvöldmat.  Þá er ég yfirleitt orðin þreytt eftir daginn og finnst stundum ótrúlega pirrandi að geta ekki bara skellt einhverju tilbúnu á borðið.  Þá pirrast ég líka oft út í manninn minn fyrir að vera ekki klárari að elda og oft á tíðum er heilinn á mér á suðupunkti svona milli hálf sex og hálf sjö.  Ég er búin að vera að skoða þetta þar sem að ég vil breyta þessu.  Hef skoðað þetta áður og reynt að breyta en held að vegna óþolinmæði hafi það ekki alveg tekist ennþá. En eg er orðin mjög meðvituð um þetta sem er alltaf fyrsta skrefið!  Og hvernig ætla ég svo að breyta þessu?

- Ég ætla að minna sjálfa mig á að það er gott og borgar sig að eyða tíma í sjálfa sig með því t.d. að elda eins hollan mat og völ er á - eitthvað sem lætur manni líða vel á líkama og sál.

- Ég ætla að reyna að iðka þolinmæði þegar maðurinn minn hjálpar mér/eldar sjálfur þar sem hann hefur hundrað sinnum minni reynslu og þekkingu á matargerð.  Að leiðbeina honum með þolinmæði er held ég eina leiðin til að hann haldi áfram.

- Ég ætla að minna sjálfa mig á að þó það geti verið þægilegt að fá eitthvað tilbúið, þá veitir það manni bara stundargleði, á meðan í fráhaldinu er ég að byggja upp og sjá fram á lengri tíma heilbrigði og vellíðan.

- Ég ætla að reyna að upplifa matargerðina sem eins konar hugleiðslustund fyrir mig þar sem ég róa hugann eftir daginn og hugleiði á betri líðan með því að elda hollt

- Ég ætla að minna mig á hvað mér var farið að líða vel líkamlega og andlega eftir ár i fráhaldi og 30kg léttari.  Þetta ár og sú líðan verður komin áður en ég veit af ef ég tek áfram einn dag í einu.
 
Læt þetta nægja í dag - eigið góðan dag í ykkar heilsuveröld :-) 

Lýst vel á punktana hjá þér!

Þú getur líka skorið niður grænemti og japlað á, þegar þú ert að borða til að "friða" þig aðeins :) Ef það hjálpar sko hehe ...

Þú stendur þig VEL!!!!!!!!!!!!!
#1
26. maí 2010 klukkan 08:10
 
minnkandi
Takk - Mér finnst alltaf svo gaman að sjá hlaðna diskinn minn að ég tími ekki að borða grænmetið fyrir matinn :) Enda snýst þetta ekki bara um að ég sé orðin svona brjálæðislega svöng, heldur meira þreytt og þess vegna gremju yfir því að eiga eftir að elda :):)
#2
26. maí 2010 klukkan 12:07
hihihi.. skil þig :)
#3
26. maí 2010 klukkan 19:13
 
Carole
sæl fæ að fylgjast með þér og er nefnilega líka í fráhaldi.
#4
07. júní 2010 klukkan 18:33

Skrifa athugasemd