Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

Hrasaði en reis upp aftur - Dagur 4

11. júní 2010 klukkan 13:17
Eftir tvær vikur í fráhaldi hrasaði ég en reis aftur upp viku seinna og í dag er dagur 4.  Ég hef oft hrasað s.l. 3 ár en það líður æ styttri tími á milli þess sem ég vil halda áfram og ég tel mig þess vegna hafa verið að vaxa aftur í áttina að lífi í stöðugu fráhaldi. Ég fann rosalega fljótt núna þegar ég datt úr út prógramminu hvað það hafði neikvæð áhrif á mig líkamlega að borða hvað sem var og svo fylgdi verri andleg líðan í kjölfarið.  Ég er þess vegna mjög glöð að hafa náð að byrja aftur.  

Og hvað er ég svo að gera til að fyrirbyggja fleiri föll?

1.  Ég las aftur langan og mjög góðan bækling sem mér áskotnaðist einu sinni um föll matarfíkla - hvað gerist i undirbúningsferlinu, hvar liggur þráhyggjan (sem er auðvitað mismunandi á milli fólks en þó oft ansi svipuð) og hvað er til ráða.

2.  Ég er að lesa bók sem heitir mátturinn í núinu sem er góð lesning - allt sem hjálpar mér til að vera í núinu en ekki fortíðinni eða framtíðinni finnst mér hjálpa

3.  Ég fókusera á það hvað það er frábært að þurfa ekki að velta því fyrir mér hvað og hvenær ég ætla að borða - ég ákveð það daginn áður, kíki í bókina mína fyrir hverja máltíð og málið er dautt.  Þetta er besta leiðin sem ég hef kynnst til þess að láta mat verða minna atriðið í lífi mínu - og í kjölfarið koma fleiri hlutum inn í líf mitt.  Í leiðinni get ég verið 100% viss um að ég er að léttast/standa í stað og að barnið í maganum er samt að fá það sem það þarf.

4.  Ég skype-ast daglega við stuðningsaðliann minn á Íslandi, yfirleitt bara stutt til að fá smá tengingu og það heldur mér við efnið.

5.  Ég forðast og ýti burt hugsunum sem snúast um samanburð við annað fólk en þær eru í 99% tilfella mín leið til sjálfniðurrifs, frekar en upphafningar fyrir mig.  Í staðinn reyni ég bera mig saman við mig og horfa á hverjar framfarirnar hafa orðið hjá sjálfri mér.  Ég þarf jú ekki að búa með mikið fleirum en sjálfri mér, mínum hugsunum, tilfinningum og gjörðum haha

Og hvað er ég svo að borða?
Í morgun fékk ég æðislegan shake, úr ab-mjólk og frosnum jarðaberjum sem ég sætti með smá canderel.  Síðan borðaði ég salat með feta, hveitikim með smjöri og skinku og ab-mjólk með epli út í í hádeginu.  Í kvöld verður svo stórt salat, egg og beikon, steiktur rauðlaukur og paprika og mayones sem sósa.  Í eftirmat ab-mjólk og epli ...namm...

Eigið frábæran dag í ykkar heilsuheimiLaughing






Það er í lagi að bera sig saman við aðra, svo lengi sem maður notar það til að byggja sjálfan sig upp.. En ég skil hvað þú meinar.. Ég geri þetta alltof mikið.. finnst allir aðrir vera frábærir *hrmp*

en auðvitað eigum við að líta í eigin barm og sjá hvað við erum komnar langt.... við vitum nefnilega alla söguna með okkur sjálf, en ekki alla söguna hjá öllum hinum :)

þú stendur þig vel :)
#1
11. júní 2010 klukkan 19:34
Frú minnkandiJá, það er auðvitað bara hluti af þráhyggjunni að bera sig saman við aðra - það hafa allir allar hliðar og allir eru alltaf á einhverri leið (með því óskiljanlegra en þó gáfulegra sem ég hef skrifað lengi haha)

Og - þú stendur þig vel sömuleiðis :)

#2
12. júní 2010 klukkan 18:43
Við erum klárlega flottastar sko!
#3
12. júní 2010 klukkan 18:45
.....Svona í samanburði við aðra hahahahha...
#4
12. júní 2010 klukkan 18:45
Frú minnkandi:):):)
#5
12. júní 2010 klukkan 21:33

Skrifa athugasemd